Skip to content
TrackPodcasts
newsSep 22, 202619:46pending

Wolt-væðingin á Íslandi

Þetta helst

Get every episode summarized

Each time Þetta helst publishes, we email you a written briefing from the transcript — the topics, who appeared, and any specific claims, with the ad reads skipped.

Email me new episodes

Free for 3 shows. No card needed.

About this episode

Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin fjalla um notaði félagið eingöngu til að fá greitt frá Wolt. Félag mannsins var stofnað árið 2023 en varð gjaldþrota árið 2025. Í gögnunum kemur jafnframt fram að fleiri en einn sendill hafi fengið greitt fyrir vinnu sína hjá Wolt í gegnum einkahlutafélag mannsins. Mikil umræða hefur verið um heimsendingarfyrirtækið Wolt síðustu vikuna eftir að sendlar sem keyra út fyrir fyrirtækið lögðu niður störf vegna kjaramála í síðustu viku. Sendlarnir vilja meina að þeir fái greidd laun sem eru undir kjarasamningsbundnu lágmarki, þeir séu gerviverktakar hjá Wolt og að laun þeirra fyrir sendlastörfin hafi verið lækkuð um helming á árinu. Rætt er við lögfræðinginn Karen Ósk Nielsen Björnsdóttur hjá ASÍ um Wolt og sænska doktorsnemann Pontus Blume sem skrifar doktorsritgerð um fyrirtækið og önnur giggfyrirtæki. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Hosts & guests

No transcript yet

This episode has not been transcribed. Request it and it moves to the front of the queue.

Wolt-væðingin á Íslandi

Þetta helst

0:00
19:46

More episodes

More from Þetta helst

View all episodes →